Búið er að færa BAG, við fórum ekki langt því við fórum á 2 hæðir fyrir ofan, núna er BAG komið á 2 hæðir og er orðið 2x stærra.

Á neðri hæðinni er box hringur og slatti af púðum og þar fara hópaæfingar fram.
Á efri hæðinni er lyftingaaðstaða og það á eftir að hengja upp nokkra púða þar. Síðan kemur kanski hringur sem er auðvelt að setja upp og auðvelt að taka í sundur sem á eftir að vera notaður sem ferðahringur þegar við förum eitthvað út á land (eða þar sem hringur er ekki til) að keppa.
_____________________________________________________