Mike Tyson sýndi heiminum að greindarvísitala hans er tæplega hærri en 80 þegar hann gekk að Lennox Lewis á blaðamannafundi sem haldinn var vegna bardagans milli þeirra og byrjaði að slást við fylgdarmenn Lewis með þeim afleiðingum að allir byrjuðu að slást á blaðamannafundinum. Þeir sem hafa séð þetta sáu líka að Tyson var með hótanir við Lewis við myndatökumenn. Þetta reiðiskast hjá honum var ótrulegt og skrýtið að honum skuli detta í hug að storma að heimsmeistaranum á fundinum og byrja með læti. Ég spái og vona að Lewis steinroti Tyson svo heimurinn geti fengið að sjá alvöru boxara en ekki svona asna.

Kveðja
Marciano