Vinur okkar og félagi Guðmundur Arason er látinn 89 ára að aldri. Guðmundur var kennari og mentor flestra þeirra sem staðið hafa í framlínu hnefaleikanna sl. áratug og sjálfur kynntist ég Guðmundi afar vel og má með sanni segja að margir hafi notið handleiðslu og örlætis þessa spræka öldungs. Ég vil votta aðstandendum, vinum og fjölskyldu þessa stórmennis mína dýpstu samúð, Guðmundar verður minnst fyrir mörg afrek á hinum ýmsu sviðum, en í mínum huga var Guðmundur fyrst og fremst einn af “okkur strákunum”
þó aldurbilið væru rúmir fimm áratugir.

Óli