Boxmót verður haldið hjá HFH laugardaginn 24.nóvember.
Samtals verða háðir um 4 diploma bardagar og 12 junior/senior bardagar, þar af 7 gegn Dönum.
Keppendur frá flestum félögum landsins munu taka þátt.
Hægt er að lofa því að þetta verður hið glæsilegasta boxkvöld þar sem öllu verður tjaldað til. Margir spennandi bardagar verða háðir en keppendalisti verður birtur þegar nær dregur.

Keppni hefst kl.19:30 í Dalshrauni 10. Aðgangseyrir verður kr.1.200 og það er um að gera að mæta tímanlega til að fá sæti.