yo. mig langar að fara að æfa box, soldið mikið. hvaða félagi mæliði með? og hvernig er þetta, er ókeypis fyrsti tími hjá öllum félögum einsog er hjá hr?

svo var ég að spá í hvernig æfingarnar hjá ykkur eru, getiði lýst þeim fyrir mér? mikið þrek og hvernig þrek þá? mikið hlaupið? mest slegið í púða? er algjör nýgræðingur í þessu svo þið megið endilega segja mér sem mest.

væri líka til í að vita hvaða félag væri næst mér, ég er rétt hjá hlemmi…

fyrirfram þakkir.