Goofi Whitaker, fyrrverandi Mount Whitaker og þaráundan Lance Whitaker tapaði illa á stigum fyrir nýstyrninu Jameel McCline í góðgerðabaradaga í New York í gærkvöldi.
McCline, sem fyrr á þessu ári rotaði Michael Grant í 1. lotu, notaði stunguna til að halda Whitaker frá sér og varð ávalt fyrir til þegar þeir skiptust á höggum, dómaraspjöldin lásu: 116-112, 114-113 og 115-112. Öll McCline í vil.
Á undercardinu rotaði Fres Oquendo nígeríubúann David Izon í 3. lotu. Izon sem ekki hafði barist í 14 mánuði var einstaklega ryðgaður og Oquendo bókstaflega valtaði yfir hann. Þetta er stærsti sigur Oquendo en hann rotaði einnig hinn fyrrverandi unga og upprísandi Clifford Etienne fyrr á árinu.