Sælt veri fólkið, boxarar og aðrir hugarar.
Ég hef í þónokkurn tíma verið að pæla í að fá mér boxpúða og hef séð 2 tegundir hér á landi sem vekja áhuga minn, annars vegar þessir klassísku púðar sem hanga niður úr loftinu og hinsvegar veggpúðar sem eru einfaldlega festir á vegg.
Hver er ykkar reynsla af hvorutveggja?
Veggpúði er að sjálfsögðu töluvert fyrirferðarminni heldur en danglleðurpokinn en er danglleðurpokinn sniðugari?

Sömuleiðis : er þetta sniðugara en vafningar?
EverGel Glove Wraps
Semper fidelis