Evander Holyfield er kominn aftur í hringinn þótt að hann sé að verða 44 ára gamall. Í gærkvöldi keppti hann við Jeremy Bates sem er nú ekki með feril upp á marga fiska. Og Holyfield átti ekki í vandræðum með Bates enda sigraði hann á tæknilegu rothöggi í 2. lotu. Það er spurning hvort hann reyni að boxa eikkað meira á næstunni og verður gaman að fylgjast með því.