Sælir, nú hef ég verið staddur erlendis í áratug og hef mikla reynslu af hnefaleikum. Ég er hálfur Íri og er frændi Ricky “The Hitman” Hatton og hef verið að þjálfa hann og rek líka gym þar sem menn eins og Manny Pacquiao og Winky Wright hafa verið að æfa. Nú er ég að fara að flytja til íslands og var að spá í hvernig staðan er, hverjir eru bestu klúbbarnir og þjálfararnir. Mér líst mjög vel á það sem er að gerast í íslenskum hnefaleikum.