Hvernig væri að þeir færu að kynna sér eitthvað boxarana sem eru að berjast áður en þeir lýsa bardögunum þeirra. Þeir vita aldrei neitt um boxarana nema í main eventinu. Ómar var eitthvað að tala um síðast að “þessi Amir Khan væri örugglega efnilegur” eins og hann hefði fyrst verið að heyra um hann núna, allir sem fylgjast eitthvað með boxi ættu að vita að þetta er efnilegasti boxarinn í dag.