þá er könnunin sem ég skellti inn búin að fljóta soldið. Persónulega finnst mér 12oz þægilegast. Ég er einn af þessum sem æfir alltaf með 16oz og hlakka til að smella á mig 12 hönskunum og finna hraðamuninn. Þið sem völduð 16, finnst ykkur það ekki aðeins of stórt… það er eiginlega húmor að horfa á fólk sparra með svona stórum hönskum. Treystið frekar sparrfélaganum og notið minni hanska.