Svoleiðis er að ég er nýfluttur til Hveragerði og var að sjá síðu um hnefaleikafélag hér. Ég var að velta fyrir mér hvort þið sem stundið box séuð í eða vitið um einhvern í HFS. Vefsíða félagsins hefur sennilega ekki verið uppfærð lengi og veitir því miður littlar uplísingar. Ég hef mjög mikin áhuga að heira frá meðlimum eða einhverjum sem þekkja þetta um hvernig félagið er, hvort það séu margir meðlimir og hvort það sé einhver sem ég get sparrað við (er það ekki annars mikilvægt) ég er fæddur 86 og væri sennilega léttvigt. Box íþróttin á íslandi virðist ekki vera að fá mjög mikla athyggli eins og er og íslenskar box vefsíður ekki uppfærðar oft, er hún ekki öruglega í fullum gangi?
Endilega svara þó þið vitið ekki neitt um HFS ég vill vita sem mest. Takk.