Mörg eru nú áhugmálin í samfélaginu.
Nú verð ég að viðurkenna að box er eitthvað sem ég (í minni fáfræði) er ekki hlynnt.
Að vera að lemja aðra manneskju með hönskum er allt í lagi, á meðan ekki er verið að slasa hana.
En þar er ekki skaðinn, að mínu áliti.
Ég held hinsvegar að þetta sé hrikalega slæmt fyrir þá sem eru að horfa á boxið og að vera spenntur við kassan yfir næstu höggum er eitthvað sem er ekki gott fyrir andlegt ástand einstaklinganna.
Ég held að þetta hvetji til ofbeldis og er í rauninni villimenska.
Haldið þið virkilega að þegar þið eruð að horfa á boxið að þið séuð að hugsa um stigin sem maðurinn fær fyrir að hitta á réttan stað?
Nei!
Þið eruð bara æstir yfir því að verið sé að lemja einn gaurinn í stöppu og fáið einhverskonar útrás fyrir vikið. En greinilega ekki nægilega vegna þess að þetta er einn af mörgum hlutum sem hvetur stráklinga til þess að fara niður í bæ og ráðast á hvorn annan, oft að ástæðulausu!