Ég sendi þessa grein kannski meira sem “tjekk” á þeim sem eru að skrifa hér daglega til að athuga hvernig andrúmsloftið er fyrir bardagana sem verða í Keflavík 20.mars. Ég er helst að leitast eftir því hverjum menn spá sigri í Re-matchinu sem fer þar fram.

Ég spái því að Lalli vinni Tomma (með fullri virðingu við hann). Ég tel nefnilega Lalla vera rosalegan boxara (sem þarf þó að komast undir þjálfara hendur) og það sem meira er hann er svo sterkur, snöggur og hrikalega höggfastur, ég sparra með honum og hef fengið að kynnast þeim nokkrum. Þannig að minn peningur fer á Lalla, endilega komið með comment og leyfið mér að lesa hvað ykkur finnst.