Eins og flest ykkar vonandi vita keppa Roy Jones og Antonio Tarver um léttþungavigtartitla næsta laugardag. Ég vildi forvitnast um spádóma ykkar á bardaganum.
Ég persónulega held að Roy taki þetta á rothöggi seint í bardaganum jafnvel á stigum, ef hann tapar mun hann líklegast æfa sig eins og sjúkur maður og ganga frá Tarver í seinni bardaganum.