Þetta var fínn bardagi framan af um helgina en mér fannst helvíti lélegt hjá Mitchell að fara inn með svona veikt hné. Þetta var bara peningagræðgi í honum kallinum. Samt held ég að Kostya Tszyu hefði rotað hann í seinni lotunum. Spurning hvort hann eigi eitthvað í Zab Judah. Judah er ekki eins reyndur og Mitchell en er mun höggþyngri og enn tæknilegri. Ég held að Tszty sé bara of hægur fyrir hann. En maður veit aldrei. Þetta verður klikkaður bardagi.
Er einhver annar en ég ósáttur við að Jones sé að fara berjast við annan aumingja næst?