ég er nú kannski ekki sú besta í boxmálum en mig langar að deila með ykkur skondinni sögu um mömmu mína.þannig er mál með vexti að mamma var nýlega komin heim frá spáni og var frekar brún og sæt eftir ferðina, þetta var rétt eftir leiðinda málið með mike tyson.
mamma fór eitt kvöldið á djammið með vinkonum sínum og var skyndilega kýld í andlitið af rúmlega fimmtugum karlmanni um leið og hún heyrði setninguna
“ ÞÚ ERT ALVEG EINS OG MIKE TYSON Á LITIN ”
mamma greyið staulaðist í burtu frá manninum en hún var ekki komin langt þegar konan hans kom hlaupandi á eftir henni og baðst afsökunar á hegðun mannsins hennar. mamma tók nátúrulega afsökunarbeiðnina gilda og fór bara heim eftir lætin.
við höfum hlegið mikið af þessu atviki síðan.

VARÚÐ! EKKI VERÐA OF BRÚN NÆST ÞEGAR ÞIÐ FARIÐ TIL SÓLARLANDA,
ÞIÐ GÆTUÐ HREINLEGA VERIÐ KÝLD NIÐUR FYRIR ÞAÐ.