Þetta var það allra lélegasta sem ég hef á ævi minni séð, landslið Íra og bestu boxarar á Íslandi my ass. Fyrstu þrír bardagarnir voru náttúrulega bara fyndnir, svei mér þá ef Sveppi og Auddi voru ekki skárri boxarar en þeir íslensku. Skúli “Tyson” fékk mestu horrenglu sem ég hef séð með innfallinn kassa, Vá sigraði hann herra “Biafra”, hver hefði ekki sigrað hann? næsti bardagi var ok en sá íslenski náði sér ekki á strik, og lokabardaginn, hann er efni í sérgrein, íslenskur á móti fat bastrad frá írlandi, hvað var þessi maður að gera í hringnum, hann átti að fara beint á Heilsuhælið Hveragerði að berjast við offituvandamál. Þetta var ÖMURLEGT, það er í það minnsta ár þangað til fólk gleymir þessu og lætur narra sig út í að kaupa miða á svona viðbjóð eða taka frá tíma til að horfa á íslenskt box.

Á skalanum 1-5 fær þessi viðburður ekki eitt stig!