Var að fregna að hinn frægi Fan-man sé látinn, en fyrir þá sem ekki kannast við nafnið Fan-man a.k.a. James Miller, þá útbjó hann fallhlíf með mótor og flugvélablöðum og sveif inn í hringinn í bardaga þeirra Riddick Bowe og Evander Holyfield árið 1993, nánar tiltekið í 7lotu. En bardaginn var haldin utandyra í Las Vegas. Holyfield vann bardagan á stigum og Fan-man var barin af horninu hans Bowe, sem voru síður en svo ánægðir með þetta innslag, en Fan man var síðan handtekin og dæmdur í 10 daga fangelsi fyrir gjörðir sínar.

Þessi atburður varð síðan endurgerður í Simpson þætti, þar sem Hómer Simpson barðist við Dredric Tatum.

Miller var 39 ára gamall og dánarorsök var sjálfsmorð