FRÁÁÁÁÁBÆR BARDAGI!! VÁÁÁÁ! Góðir hálsar þessi bardagi fer í sögubækurnar! Trinidad sannaði að hann er einn besti pund-fyrir-pund boxari heimsins í dag. Þegar Tito mætti í hringinn þá var ljóst að hann var í feeeeiiikna formi. Vargas virkaði hinsvegar frekar slappur og óstyrkur til að byrja með. Fyrsta lotan var ótrúleg!! Vargas var sleginn niður kaldur tvisvar… já það gerist ekki betra. Ég og Ómar vorum alveg að drepast úr spenningi allar tólf loturnar. Frábær bardagi svo ekki sé meira sagt. Svo er bara spurningin á móti hverjum Tito keppir næst. Ég bíð spenntur.