Hvaðan kemur gaurinn eiginlega…kleppi?
þessir stælar með að koma inn á svæðið svona voða töffaralega fór algjörlega útum þúfur og mistókst all svakalega hjá honu, varð meira að segja mjög hallærislegt. Svo þetta með viðtalið hjá Bubba eftir að hann hafði unnið sinn bardaga og að hann og suðurnesjamenn væru nú bara vanir að berja kanana(fordómar dauðans). Gaurinn er með alltof mikið egó til að vera í svona íþrótt, Bubbi talaði enda líka bara mjög stutt við hann og virtist vera búinn að fá nóg af þessum stælum.
Svo var hann nú líka alltaf að kreppa vöðvana(ég reyndar bara spyr; hvaða vöðva?) og eitthvað svona…díses þessi gaur er ekki í lagi!!
Ég veit svosem alveg líka að þessi íþrótt er þannig að maður verður að geta eitthvað, en ég er ekkert að segja að hann geti það ekki, en mér finnst þetta samt fullmikið hjá honum, hann fer nú bara frekar mikið í taugarnar á mér(og nei það er ekki því ég sé afbrýðisöm) því að þetta box okkar íslendinga finnst mér bara fáránlegt yfir höfuð(en það er samt í fínu lagi að þetta sé stundað, en að verð sé að keppa í þessu fór nú alveg með það!)<br><br>Vissir þú að tungan í steypireyð er jafnþung og fíll? ;)
Vissir þú að tungan í steypireyð er jafnþung og fíll?