Lennox Lewis hefur tekið þá ákvörðun að gefa frá sér IBF heimsmeistaratitilin í þungavigt frekar en að mæta Chris Byrd sem er áskorandi nr. 1 og sagði Lewis að enginn áhugi væri fyrir bardaga á milli þeirra auk þess sem Byrd ætti hvort eð er ekki séns í sig.

Byrd mun nú líklegast mæta Evander Holyfield í byrjun næsta árs og mun þá IBF beltið vera í húfi.
Enginn veit hvað Lewis gerir næst en miklar líkur eru á því að hann muni ráða Don King sem umboðsmann sinn á næstu dögum og þá má fastlega gera ráð fyrir Lewis-Ruiz bardaga eða þá á móti Vitali Klitchko.

Meira síðar..