Heimildarmynd um Box á Íslandi Ég er að gera mynd um box á Íslandi og er komin vel á veg. en áður en ég fer að klippa hana langar mig að vita hvort það er eitthvað sem bæta má við. Þeir aðilar sem fram koma í myndinni eru þeir sem hrærast opinberlega hingað og þangað í umræðunni um boxið. Ég tel mig vera komin með alla þá sem máli skipta, fyrir utan þrjá aðila, en það verður haft samband við þá um miðjan maí.

ég reyni að fjalla um boxið á bæði jákvæðu og neikvæðu nótunum, en ég verð að vera algjörlega hlutlaus í þessu máli.

Endilega kæru boxáhugamenn sendið mér línu um það sem þið viljið sjá í myndinni, ég gæti ef til vill nýtt mér það og gert myndina betri fyrir vikið netfangið er keva@strik.is og svo náttúrlega póstfangið hér á huga.