Að maður skyldi eyða tíma í að horfa á þetta???

Þetta var það fáránlegasta sem ég hef séð í boxhringnum. Jafnvel Eyrnastór vs. Tyson var skárri en þetta.

Hvað er að mönnum eins og Golota? Var búið að kaupa hann eða er hann einfaldlega svo mikil gunga að hann þorði ekki aftur inní hringinn með Tyson?

Síðan þessar eðalskýringar í restina… “It just wasn't my day…”

Þetta er í síðasta skipti sem að ég skipuleg sérstakt partý fyrir einhverja spennandi boxkeppni.

Arrggghhh….

Jæja… ég er farinn að lesa brandaradálkinn til að koma mér í gott skap.

Nóg í bili… Xavie