1. árs afmæli Hnefaleikastöðvarinnar og HFÆ -- Frí Námskeið Núna í janúar 2008 mun Hnefaleikastöðin og Hnefaleikafélagið ÆSIR eiga eins árs afmæli og í tilefni þess munum við bjóða upp á frítt í öll námskeið dagana 7-11 janúar

Við bjóðum upp á námskeið fyrir alla aldurshópa í ólympískum hnefaleikum og Fitnessboxi..
–>Nýjasta námskeiðið er Fitnessbox fyrir Stelpur á aldrinum 13-15 ára

Á árinu sem kemur munum við koma inn með tvo nýja aðstoðarþjálfara sem verða með í byrjendanámskeiðunum..

Uppbygging byrjendanámskeiða verður núna 8 vikna kúrsar.. að því loknu er síðan hægt að velja um að færa sig í Keppnishóp eða æfa bara vegna þess að það er gaman!! :)

Skráning er hafin í frídagana og er hægt að kynna sér námskeiðin sem verða í boði og skrá sig á

www.hnefaleikar.is