Don King- Evil Genius Don King varð ríkur og frægur á því að skipuleggja “Rumble in the Jungle” bardagann á milli Muhammed Ali og George Foreman. Eftir það varð hann gríðarlega valdamikill í boxheiminum og hefur gert hnefaleikunum meira illt en gott síðan. Hann hefur blekkt marga boxara og hikar ekki við að svíkja og ljúga. Hann hefur fengið margar kærur á sig, þar á meðal frá Muhammed Ali, Lennox Lewis og svo náttúrulega Mike Tyson sem Don King féfletti algjörlega og plataði upp úr skónum. Hann var líka kærður fyrir tryggingarsvindl í sambandi við Julio Cezar Chavez bardaga en var sýknaður, stuttu eftir launaði hann kvikdómnum með því að bjóða þeim í frí til Bahama eyja.

Áður en Don King varð frægur hnefaleika promoter var hann svikahrappur sem rak ólögleg fjárhættuspil. Hann var tvisvar sinnum handtekinn fyrir að drepa mann. Í fyrra skiptið var hann sýknaður því þetta var úrskurðað réttlætt morð því maðurinn sem hann skaut var að ræna hann, þrátt fyrir að hann hafi skotið hann í bakið. Í síðara skiptið stappaði hann á hausnum á manni sem skuldaði honum 600 dollara þangað til hann dó. Don King gerði allt til að reyna að múta kviðdómendunum en var á endanum dæmdur fyrir manndráp en tókst einhvern veginn á grunsamlegann hátt að fá dóminn sinn styttann.

Einnig hefur hann verið sakaður um það að vera í slagtogi með ítölsku mafíunni.

Þetta var bara smá grein um þennan mann sem ég kýs að kalla snilling, hann er alveg fluggáfaður og hefur á ótrúlegann hátt náð að plata hundruði milljóna út úr boxurum sem hann hefur haft undir sínum “verndarvæng”.