Ólympíumeistarinn í yfir þungavikt, Audley Harrison rotaði andstæðing sinn á innan við 3 mínútum í fyrsta bardaga sínum sem atvinnumaður, andstæðingurinn, Mike Middleton var ekki talinn sigurstranglegur en hann hefur tapað nánast ajfn mörgum bardögum og hann hefur unnið. Eftir bardagann sagði Harrison að hann væri enn á botninum í atvinnumanna heiminum og ætti margt ólært og að hann ætlaði sér að taka þ´vi rólega og vaða ekki í neitt með neinu fússi. Tíminn vinnur þó ekki með Harrison því að hann er orðoinn 29 ára gamall sem er mjög hár aldur fyrir mann sem er að byrja í atvinnumennskunni, sérstaklega ef hann stefnir á titilinn!