Felix Trinidad gjörsigraði William Joppy í viðureign þeirra í nótt.
Hann sló Joppy þrívegis niður, einu sinni í 1. lotu, svo aftur í 4 og kláraði síðan dæmið í 5. lotu.
Joppy sýndi þó hjartalag meistarans með frábærri frammistöðu eftir að hafa verið slegin niður en Puerto Ricanin var einfaldlega of sterkur. Þessi sigur blæs á allar efasemdaraddir sem héldu því fram að Trinidad væri ekki sannur milliviktari og verður gaman að sjá hann berjast við Bernard Hopkins í september!