Það fór eins og flestir bjuggust við að Danny Williams ætti ekki möguleika gegn Vitali Klitschko en þó verður að telja Williams til tekna að hann tók mörg gríðarlega þung högg frá Úkraínumanninum. Vitali Klitschko verður seint talinn skemmtilegur boxari en stíllinn er árngursríkur og virkar. Ég verð nú að segja að menn hafi ofmetið Danny Williams en hann hefur tapað fyrir minni spámönnum eins og gegn Julius Francis sem Tyson barði í hengla um árið . Nú er bara spurning hvað gerist næst í þungaviktinni og hver verði næstur á lista hjá Klitschko?