Nýkrýngdur heimsmeistari í þungavigt, Hasim Ragman, lenti ásamt fjölskyldu sinni í umferðarslysi í morgun og slösuðust lítillega, Rahman fékk skurð á olnboga, en kona hans er hugsanlega sködduð á hálsi. Börn þeirra meiddust lítillega. Hann var á leið heim til sín af hátíð, sem haldin var í tilefni af sigri hans á Lewis.