Milli klukkan 12:00 og 18:00 laugardaginn 4. september verður opið hús hjá Hnefaleikafélagi Reykjavíkur, Faxafeni 8, þar sem þjálfarar verða á staðnum og kynna sína tíma.

Meðlimir félagsins munu taka nokkrar æfingar og lengra komnir munu stíga inn í hringinn og leyfa gestum að fylgjast með nokkrum æfingum.

Einnig verða reyndir hnefaleikamenn og þjálfari á staðnum til að kynna æfingar og leyfa áhugasömum að prófa nokkrar púðaæfingar.

Er þetta kjörið tækifæri fyrir áhugasama til að koma og kynna sér starfsemi og aðstöðu Hnefaleikafélags Reykjavíkur.


Hnefaleikafélag Reykjavíkur
Faxafeni 8 - 108 Reykjavík
Sími 426-9464 (4-boxing)
Heimasíða: www.hnefaleikar.is
Netfang: box@hnefaleikar.is