Shelley Finkell, umboðsmaður Mike Tyson, sagði fjölmiðlum að “Gullnáman” hans myndi berjast við David Izon þann 19 maí. Staðsetningin er ekki ákveðin ennþá. Izon er 32 ára Nígeríubúi og barðist síðast við Derrick Jefferson á undan Roy jones-David Telesco. Sá bardagi var einn allra skemmtilegasti þungavigtarbardagi síðasta árs og endaði hann með því að Izon rotaði Jefferson í 9. lotu. Hann er klónnin hans Tyson hvað líkamsburði varðar og ég spái skemmtilegum bardaga.