Það hefur greinilega margt breyst hérna eftir tilkomu nýrra stjórnenda. Þetta áhugamál hefur gjörsamlega rifið sig upp úr mikilli lægð. Eftir að hafa verið alltaf í kringum 50-60 sæti á vinsældarlista huga(samtals 152 áhugamál). Þá hefur þetta áhugamál skotist uppí sæti 28 eftir að hafa verið í sæti 56. Svo það gerir box að lang vinsælasta íþróttaáhugamálinu hérna á huga(næst á eftir er enska deildin 40 sæti). Það má segja að áhugin á þessu áhugamáli hefur aukist til muna.

Við stjórnendurnir þökkum þeim sem hafa verið duglegir að stunda þetta áhugamál. Og við vonum að allir haldi áfram að stunda þetta svona vel.

BOXIÐ LIFIR

Kveðja Stjórnendu