Lennox Lewis sagði nýlega í viðtali við breska blaðið London Daily Mail að hann væri búinn að fá nóg af Mike Tyson og hans fólki.“ Ég er orðinn mjög þreyttur á því að Tyson og umboðsmaðurinn hans Shelly Finkel haldi því fram að það sé ég sem vilji ekki berjast,” sagði meistarinn. “ Ég vil skýra frá stöðunni eins og hún er. Það eru þeir sem sífellt koma sér undan bardaganum og láta mig bíða.” Þegar hann var svo spurður hvort eitthvað yrði af bardaganum, sagði hann“ Það er ekki smuga að þessi bardagi eigi sér stað í nánustu framtíð”.