Í dag fór fram önnur umræða um lögleiðingu ólympískra hnefaleika á Alþingi og fylgdist ElDiablo með af athygli. Ég hef aldrei á ævi minni orðið vitni af öðrum eins sandkassaleik hjá fullorðnu fólki. Bæði meðmælendur og andstæðingar gerðu í því að opinbera fávisku sína hvað hnefaleika varðar og fóru andstæðingar þar fremstir í flokki. Fullyrðingar eins og; “keppni verður að enda með rothöggi til að úrslit fáist”, “Konur skaðast á brjóstum af því þær nota ekki hlífar fyrir brjóstin”, “Ofbeldi mun aukast í þjóðfélaginu með lögleiðingu hnefaleika” og annað álíka gáfulegt var látið fjúka í umræðunum í dag og mér, sem hnefaleikaiðkanda og áhugamanns um hnefaleika, blöskraði að þetta væri fólkið sem að stjórnaði þessu landi. Hvernig er hægt að ætlast til þess að fá þetta frumvarp í gegn á meðan að umræðan er ekki gáfulegri en þetta. Þau vita ákúrat ekki neitt um áhugamannahnefaleika og flagga því fyrir framan alþjóð. Eftir þessa umræðu í dag verð ég að játa að ég er svartaýnn á að frumvarpið fari í gegn. Á meðan að andstæðingar hnefaleika neita að opna augun fyrir því að það er verið er að fremja mannréttindabrot hér á landi á okkur áhugamönnum hnefaleika þá erum við ekki í góðum málum.
Huggið mig með einhverjum bjartsýnis orðum!