Nú hafa ísfirðingar opnað nýja aðstöðu til boxiðkunar og mun það vera í fyrsta skipti í um 50 ár sem box er þar stundað. Klúbburinn mun að öllum líkindum heita Mjölnir en húsið gengur undir nafninu Jötunheimar og var þar áður lyftingaraðstaða Studio Dan. Þetta er ekki stórt hús en þarna er hringur og nokkrir púðar ásamt því að þarna eru dropar og annað sem til þarf. Bráðlega ætla ég að birta myndir af aðstöðunni hér á Huga og vonandi á fleiri stöðum