Don King hefur boðið Roy Jones Jr. þriggja bardaga samning og Jones Jr. ku vera að íhuga það. Ef af þessum samningi verður mun það auka líkurnar á því að Trinidad v.s Jones Jr. verði að veruleika, því Trinidad er, eins og flestir vita, aðal peningamaskína Don King. Trinidad hefur fengið leyfi til að berjast aftur þegar að hann er tilbúinn, eftir að læknar höfðu rannsakað augnmeiðsli sem Trinidad hlaut í bardaganum á móti Fernando Vargas, en meiðslin voru ekki jafn alvarleg og þau voru talin í fyrstu. Að sögn Don King er meiningin að Trinidad berjist fyrst við sigurvegarann úr Joppy v.s Holmes, þar næst muni hann berjast við Bernard Hopkins, og komist hann í gegnum hann muni hann berjast við Roy Jones Jr.