Freddie Roach, þjálfari hnefaleikakappans Mike Tyson, segir að lærisveinn sinn sé ekki tilbúinn að mæta Lennox Lewis, núverandi heimsmeistara í þungavigt. Tyson rotaði Clifford Etienne á 49.sekúndum á laugardaginn var.
Mike var ánægður með frammistöðu sína um helgina en hann getur gert betur, sagði Roach.
Gary Shaw, umboðsmaður Tyson, útilokar ekki að viðureigin við Lewis geti átt sér stað í Júní eins og áætlað er, jafnvel þótt Tyson hafi sjálfur sagt eftir bardagann að hann væti ekki tilbúinn. Við megum ekki gleyma því að Mike er nýkomin úr hringnum og spurningunum hefur rignt yfir hann, sagði Shaw. Eftir viku gæti honum snúist hugur.
Kveðja kristinn18