Allur orðrómur um bardaga á milli Lennox Lewis, heimsmeistara í þungavigt, og Mike Tyson var kveðinn niður af umboðsmanni Lewis. Orðrómur um að bardaginn ætti að fara fram í Malasíu í um miðjan janúar reyndist rangur og þrátt fyrir að skipuleggjendur bardagans í Malasíu séu nú þegar búnir að selja einhverja miða kannaðist umboðsmaður Lewis ekkert við að bardaginn væri ákveðinn né heldur hverjir stæðu á bak við skipulagninguna í Malasíu.