Mike Tyson er ekki kominn til Memphis en upphaflega átti hann að ´
fara á sunnudag. Einnig hefur einn af þjálfurum hans gefist upp
og hætt en Tyson hefur ekkert æft síðan á fimmtudag og ber við
veikindum og er talað um bakmeiðsli, flensu og bronkítis. Einnig
er Tyson búinn að fá sér tattú sem þekur andlit hans hægra megin
(einkennileg tímasetning?) og svo hefur heyrst að hann hafi verið
að skemmta sér meira en góðu hófi gegnir. Hvort sem þetta allt er
satt eður ei þá er ekki búið að blása slaginn af svo maður vonar
bara það besta.