Úkraínsku tröllin og bræðurnir Wladimir og Vitali Klitschko hafa margsinnis sagt að þeir muni aldrei berjast við hvorn annan. En núna fyrst mun reyna á þessar yfirlýsingar bræðranna, því að Vitali er efstur á áskorendalista WBO-sambandsins og Wladimir er WBO meistarinn í þungavigt. Eins og flestir muna tapaði Vitali titlinum á sínum tíma til Chris Byrd en “litli” bróðir hans hefndi fyrir bróður sinn og flengdi Byrd í tólf lotur og hirti af honum beltið. Og nú verður spennandi að sjá hvort að þeir bræður standi við stóru orðin eða hvort að þeir mætist í hringnum.