Fréttir úr millivigt. Möguleiki er á að tveir af millivigtarmeisturunum, þeir William Joppy (WBA) og Keith Holmes (WBC) berjist á næstunni.Þar sem að þeir eru báðir á samning hjá Don King eru góðar líkur á að af þessum bardaga verði.
Það var talað um að Joppy myndi berjast við Felix Tito Trinidad, sem er einnig á samning hjá Don King,
en nýjustu fréttir benda til þess að sá bardagi verði ekki í bráð þar sem að augnmeiðslin sem Tito hlaut
í bardaganum á móti Fernando Vargas eru alvarlegri en í fyrstu var talið.