Eftirfarandi birtist á MBL.is


“Samningaviðræður við heimsmeistarann Lennox Lewis og Mike Tyson um hnefaleikabardaga þeirra á milli eru á lokastigi og er búist við að þeir mætist í hringnum snemma á næsta ári. Bardaginn var að vísu fyrirhugaður 21. janúar í Malasíu en hefur honum verið frestað. Náist samningar um að halda bardagann í Malasíu verður hann haldinn á þjóðarleikvanginum í Bukit Jalil, sem tekur 100.000 áhorfendur.”

Ég Hef ekki getað staðfest þessa grein sem ég tók á MBL.Það eru engar upplýsingar komnar á aðra netmiðla um þennan bardaga en við bíðum spenntir.