Samkvæmt nýustu upplýsingum er Paul Ingle farinn að anda án Öndunarvélar.Umboðsmaður Ingle segir að hann sé orðinn friðsælli og hafi opnað augun í stuttan tíma og hreift hendina á sér.Enn er þó óvíst hvernig batahorfur Ingle eru en auðvitað vonum við að hann eigi eftir að ná fullum Bata.Mikil gagnrýni hefur verið á hornamönnum Ingle fyrir að láta hann fára út í tólftu lotu en þjálfari Ingle segir það lán í ólani að hann skildi fara niður í tólftu því ef hann hefði staðið eftir bardagann þá hefði ekki farið fram nákvæm læknisskoðun, þá hefði ekki komið fram skaði sem hann varð fyrir fyrst í bardaganum.Ingle hefði bara farið heim á hótel og hefði verið Dáinn um morguninn.

Ég kem með fleiri fréttir um leið og þær berast.