Jæja, svo virðist sem ég sé nýjasta viðbótin við stjórnendur hér á hugi.is/bornin.

Ég er ennþá að átta mig á þessu öllu saman hérna, en ég vona að þið hjálpið til við að gera þetta áhugamál virkara en það hefur verið. :)

Ég vil hvetja ykkur til þess að senda greinar, myndir, tengla, atburði, korka og kannannir. Ef það er eitthvað sniðugt sem ykkur dettur í hug, endilega sendið það inn.

Með von um mikla virkni í vetur,
Axelma.