Ég get aldrei tekið þátt í könnunum hérna!
Í síðustu könnun var spurt á hvaða aldri þú varst þegar þú eignaðist barnið þitt. Það var enginn svarmöguleiki sem stóð:
“Á Ekki barn.” Ég á ekki barn, en þetta er samt áhugamál sem ég fer oft á af því að það er margt fróðlegt og skemmtilegt hér. Næsta könnun var: áttu strák eða stelpu?
Svarmöguleikar: Já, Nei og bæði. Ekkert sem stendur á ekki barn!
ég er nokk viss um að það eru fleiri en ég á þessu áhugamáli sem eiga ekki börn.