Dóttir mín sem er 20 mánaða er nýfarin að fara í sund (gat það ekki hér áður sökum þrálátra eyrnavandamála) og finnst það ekki leiðinlegt. Í gær vorum við að ræða um hvenær við ættum að fara næst í sund og hversu gaman það væri. Ég missi út úr mér að það sé alveg “ógeðslega” gaman í sundi og grípur dóttir mín það upp eftir mér. Nema hún sagði að það væri “oj bara gaman í nuddi” ;o)
Sá sem margt veit talar fátt