Ég sendi inn mynd af litla stráknum mínum sem fæddist 11. ágúst síðastliðinn og var hálfpartinn að vona að stjórnendur þessa blessaða áhugamáls myndu samþykkja mína mynd og hvíla aðeins myndir af sínum eigin börnum eða ættingja sinna.

Mér að óvörum kom ný mynd inn núna rétt áðan þar sem GlingGlo sýnir okkur dóttur sína (eða ég held þetta sé dóttir hennar). Ég verð nú að taka það fram að ég hef ekkert á móti börnum stjórnenda hér á Huga, en er þetta ekki orðið too much … má ekki hleypa öðrum að ??

Án þess að ég hafi gert neitt vísindalega könnun á fjölda mynda, þá sýndist mér að GlingGlo hefði sent inn allavega helming myndanna hérna og harpajul ca einn fjórða. Þá er eftir einn fjórði handa okkur hinum. Eigum við ekki að reyna að laga það hlutfall aðeins … ??

Þeir sem vilja svo skoða myndir af sætasta strák í heimi, skoðið síðuna mína á http://www.arnigunnar.net/<br><br>RoadRage
<a href=“mailto:arnigunnar@arnigunnar.net”>arnigunnar@arnigunnar.net</a>
<a href="http://www.arnigunnar.net/“ target=”_blank">http://www.arnigunnar.net/</a