Það er alveg merkilegt hvað börn geta bundist sterkum böndum.
Ég á tvo stráka sem eru 4 ára og 7 ára. Sá eldri fór út á land í sumar til að heimsækja ömmu sína og afa.. Hann var búinn að vera í burt í svona 4-5 daga þegar ég og yngri vorum að horfa á einhverja teiknimynd í sjónvarpinu þegar skyndilega sá yngri fer að hágráta. Ég hélt að hann hefði meitt sig en það var ekki málið.. Hann grét og grét of á milli ekkasoga sagði hann að hann vildi fá bróðir sinn heim…..Það sama kom fyrir um daginn þegar hann var að tala við bróður sinn síma. Nú loksins er bróðir hans að koma heim og hann getur ekki á sér setið hann hlakkar svo til.