Ég var að skoða myndirnar hérna á síðunni og vá hvað þessi börn eru öll sæt. Það er samt svo finndið að skoða svona myndir af börnum sem maður þekkir ekki neitt og sjá svo alltaf já þetta er hann Kristján Sindri, Kristófer og já þarna er hún Sonja Rán. En ég var farin að þekkja andlitin á börnunum og fór þá að hugsa að ég hliti nú bara að vera eitthvað skrítin að læra þessi nöfn strax. En það var kannski ekki skrítið vegna þess að þau eru svo sæt þessi börn að maður getur ekki annað en að læra nöfnin á þeim strax. Ég hef það samt svolítið á tilfinningunni að þið þekkist hérna eða eitthvað álíka. Þið talið alla vegana þannig saman í þessum greinum og svo þegar maður er að skoða síðuna þá er þetta bara eins og að lenda í einhverjum saumaklúbb þar sem allir eru að sýna börnin sín. Það er mjög finndið vegna þess að ég efast um að þið þekkjist hérna kannski hluti af ykkur en ekki allir. En ég vildi bara segja að börnin ykkar eru æðislega sæt og heimasíðurnar þeirra eru æðislega flottar og sætar ;o)